Loksins, loksins er hann kominn út. Ítalska undrabarnið Robertino kom til Íslands árið 1961 og söng í nokkur skipti fyrir troðfullu húsi í Austurbæjarbíói perlur eins og O sole mio, Mama, Torna a Surriento, Santa Lucia og Ave Maria, sem glitruðu fegurri en nokkru sinni fyrr úr silfurbarka þessa óviðjafnanlega undrabarns.
Hér er á ferðinni einstaklega vönduð útgáfa af upptökum sem hafa verið ófáanlegar á geislaplötu til þessa dags. Allar upptökurnar hafa verið hreinsaðar og lagfærðar hjá CEDAR Audio Restore í Cambridge á Englandi, til að óviðjafnanleg rödd þessa ítalska undrabarns mætti njóta sín sem best. Heyrn er sögu ríkari!