System.Exception: StaticFileFormInstances::SelectOne::Error occured. ---> System.InvalidCastException: Specified cast is not valid. at Disill.Modules.StaticFileForm.DB.StaticFileFormInstances.SelectOne() --- End of inner exception stack trace --- at Disill.Modules.StaticFileForm.DB.StaticFileFormInstances.SelectOne() at Disill.Modules.StaticFileForm.StaticFileForm.CreateChildControls() Steiktur Engill : zonet.is

Steiktur Engill

Lag: kk, texti: magnús eiríksson & kk

þú flýgur inn í ljósaperu hversdagsins
og svíður af þér vængina

og vaknar eins og steiktur engill
fölur máninn stikar yfir sængina

og þú finnur að botni er náð

þungbúin ský
byrgja þér sýn
hvert liggur leið
getur þú ratað heim

þú vaknar upp af flugi fugls
um furðuheima draumarugls, pældu í því

að vængir hafa vaxið aftur
kraftaverkið hefur gerst hér enn á ný

og þú finnur að fræi er sáð

fljúgðu á ný
upp fyrir ský
leiðin er greið
getur þú ratað heim
um guðs víðan geim
áttavitalaus

kk: söngur, gítar
magnús eiríksson: söngur, munnharpa
jón sigurðsson: kontrabassi
ásgeir óskarsson: trommur
eyþór gunnarsson: söngur