lag & texti: magnús eiríksson
allsnakinn kemurðu í heiminn
og allsnakinn maður fer
frá þessum dauðu hlutum
sem þú hefur safnað þér
og eftir lífsins vegi
maður fer það sem hann fer
en veistu á miðjum degi
dauðinn tekur mál af þér
ofmetnastu ekki af lífsins móðurmjólk
kirkjugarðar heimsins geyma ómissandi fólk
allsnakinn kemurðu í heiminn
allsnakinn ferðu burt
frá þessum dauðu hlutum
sem þér fannst þú hafa dregið á þurrt
magnús eiríksson: söngur, gítar
k.k.: gítar
eyþór gunnarsson: harmóníum, forspil
Upptökustjóri: Eyþór Gunnarsson
Hljóðritað og blandað í Hljóðhamri í október mánuði 1996
Tæknimaður: Óþeyr
Lokafrágangur (mastering) í Stúdíó Sýrlandi: Arnþór Örlygsson
Eyþór Gunnnarsson & Óþeyr
Útgefandi og dreifing: Japis
Í Guðs friði