Amma er best
Á þessari nýju barnaplötu fer Geir Ólafsson á kostum í skemmtilegum lögum Guðmundar Rúnars Lúðvíkssonar. Amma er best er frumsamin ný barnaplata sem rennur léttilega inn í hugmyndaheim barnanna. Lögin á þessari plötu eiga eflaust eftir að hljóma hátt og snjallt í leikskólum landsins um ókomna framtíð. Guðmundur Rúnar er ekki óvanur að finna smellina fyrir krakkana. Hver man ekki eftir Súrmjólk í hádeginu sem þeir Bjartmar Guðlaugsson gerðu að hálfgerðu þjóðlagi barna á öllum aldri? Furstarnir hans Geirs Ólafssonar sjá um undirleikinn og ekki er hann af verri endanum enda afbragðs hljóðfæraleikarar sem skipa hvert rúm í þeirri sveit.