System.Exception: StaticFileFormInstances::SelectOne::Error occured. ---> System.InvalidCastException: Specified cast is not valid. at Disill.Modules.StaticFileForm.DB.StaticFileFormInstances.SelectOne() --- End of inner exception stack trace --- at Disill.Modules.StaticFileForm.DB.StaticFileFormInstances.SelectOne() at Disill.Modules.StaticFileForm.StaticFileForm.CreateChildControls() Lesa : zonet.is

Hljóðmyndir í 120 ár
Landsbankinn fagnar 120 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni hefur Landsbankinn í samvinnu við Zonet gefið út glæsilegan afmælisdisk með "Hljóðmyndum" frá 120 ára ferli bankans.  Þetta er vönduð útgáfa af íslenskum lögum í flutningi snillinganna í Guitar Islancio.
Þórarinn Eldjárn skrifar hnyttnar hugleiðingar við lögin og fangar tíðarandann, eins og honum einum er lagið. Hvert lag er tileinkað ákveðnum áratug í sögu bankans. ´"Hljóðmyndir í 120 ár" er sérlega vandaður hljómdiskur, er þar vel að verki staðið hvað varðar alla þætti, jafnt tónlistina sem og hönnun og prentun umslagsins. Zonet óskar Landsbankanum innilega til hamingju á afmælisárinu og þakkar fyrir ánægjulegt samstarf  við útgáfu þessa eigulega grips.