7200 íslensk topplög seld - Það þýðir gull!

Geisladiskurinn 12 íslensk topplög með Á móti sól hefur verið seldur í heildsölu í um 6000 eintökum. Samkvæmt reglum Félags íslenskra hljómplötuframleiðenda þarf diskur að seljast í heildsölu í yfir 5500 eintökum til þess að ná gullsölu. Að auki þarf diskurinn að hafa selst samkvæmt tónlistanum í 3500 eintökum og má vænta þess að næsti listi staðfesti þá sölu hvað Á móti sól varðar. Zonet útgáfan óskar Á móti sól til hamingju með þennan frábæra árangur!

Á móti sól verða á ferðinni í áritunum á hverjum degi fram að jólum. Þeir verða m.a. í verslun Nóatúns á Selfossi í dag (föstudag) og í öllum verslunum Hagkaupa og Skífunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Ásamt því að árita grípa þeir iðulega í hljóðfærin og ná upp rífandi stuði - það ætti enginn að missa af því.