System.Exception: StaticFileFormInstances::SelectOne::Error occured. ---> System.InvalidCastException: Specified cast is not valid. at Disill.Modules.StaticFileForm.DB.StaticFileFormInstances.SelectOne() --- End of inner exception stack trace --- at Disill.Modules.StaticFileForm.DB.StaticFileFormInstances.SelectOne() at Disill.Modules.StaticFileForm.StaticFileForm.CreateChildControls() Lesa : zonet.is

Glitra gullin ský fær lofsamlega dóma

Jafnvægið í hljómnum er þannig mjög gott, tónlistin áreitir aldrei en svæfir mann ekki heldur. Og ef vel er hækkað er hægt að taka sér snúning við ákveðin lög. Spilamennskan er fyrirtak, fagmannleg en aldrei gerilsneydd eða dauð, eitthvað sem plagar þennan geira giska mikið. Lögin eru valin saman af kunnáttu og greinileg viss hugmyndafræði á bakvið bæði stíltegundirnar og endanlega uppröðun þeirra á plötunni.

Glitra gullin ský er bakgrunnstónlist eins og hún gerist best. Haukur Heiðar er auðheyranlega fagmaður fram í fingurgóma (bókstaflega!) og hér er hvergi slakað á gæðakröfunum frekar en fyrri daginn. Tónlistin er þannig að maður svona varla tekur eftir henni en ef maður sperrir eyrun mætir manni smekkvís, lágstemmd tónlist, spiluð af metnaði og mér liggur við að segja útsjónarsemi þeirra sem vita hvað þeir eru að gera. (Arnar Eggert Thoroddsen, Mbl. 24.11.2004)