Endurkoma Hljóma átti greinilega fullan rétt á sér!

Þeir hafa nú þegar haldið nokkra tónleika bæði í Keflavík og  í Austurbæjarbíói í Reykjavík fyrir fullu húsi. Þar sem þeir náðu upp frábærri stemmingu og komust að færri en vildu. Nú er verið að selja miða á tónleika þeirra sem verða í Austurbæjarbíói þann 2. nóv. n.k. og fer lausum miðum ört fækkandi.

Nú státa Keflvíkingar af flottu ,,stjörnuspori" á stétt í heimabæ íslensku bítlanna okkar og kæmi okkur ekki á óvart ef gestum fjölgaði þar til að kíkja á sporið - kannske í von um að berja ,,goðin sjálf" augum ef heppnin er með.