System.Exception: StaticFileFormInstances::SelectOne::Error occured. ---> System.InvalidCastException: Specified cast is not valid. at Disill.Modules.StaticFileForm.DB.StaticFileFormInstances.SelectOne() --- End of inner exception stack trace --- at Disill.Modules.StaticFileForm.DB.StaticFileFormInstances.SelectOne() at Disill.Modules.StaticFileForm.StaticFileForm.CreateChildControls() Lesa : zonet.is

Pino Marcucci

Nú styttist óðum í tónleika Robertino í Austurbæ. Miðasala hefur gengið vel og er ljóst að eftirvænting er í loftinu fyrir þessa fyrstu hljómleika Robertino á Íslandi í yfir 40 ár!

Til þess að gera þessa hljómleika eins veglega og hægt er kemur Robertino hingað til lands ásamt hinni þekktu ítölsku Universal ryrthmasveit undir stjórn sjálfs Pino Marcucci. Pino Marcucci hefur stjórnað og útsett fyrir m.a. José Carreras og Placido Domingo.

Pino Marcucci hefur samið yfir 2000 lög, gert tónlistina fyrir 50 kvikmyndir og 40 söngleiki og er gjarnan nefndur Konungur ítalska dægurlagasöngsins.

Það verður veisla í Austurbæ þegar stórsöngvarinn Robertino snýr aftur og stígur á svið ásamt þessu stórskotaliði.