System.Exception: StaticFileFormInstances::SelectOne::Error occured. ---> System.InvalidCastException: Specified cast is not valid. at Disill.Modules.StaticFileForm.DB.StaticFileFormInstances.SelectOne() --- End of inner exception stack trace --- at Disill.Modules.StaticFileForm.DB.StaticFileFormInstances.SelectOne() at Disill.Modules.StaticFileForm.StaticFileForm.CreateChildControls()
Austurbær kynnir með stolti tónleika ítalska snillingsins Robertino í Austurbæ miðvikudaginn 1. desember n.k. Það verður blásið til sannkallaðrar ítalskrar veislu og hvergi til sparað.
Ítalska undrabarnið Robertino kom til Íslands árið 1961 og söng í nokkur skipti fyrir troðfullu húsi í Austurbæjarbíói. Frægðarsól Robertino reis ótrúlega hratt. Hann breyttist á nokkrum vikum úr götusöngvara í Rómarborg í einn af vinsælustu söngvurum heimsins sem fyllti öll helstu tónleikahúsin. Með perlum eins og O sole mio, Mama, Torna a Surriento, Santa Lucia og Ave Maria, vann hann hug og hjarta heimsbyggðarinnar.
Zonet útgáfan gaf út á síðasta ári geisladiskinn Robertino - Það allra besta sem fór í gull á aðeins tveimur vikum.
Robertino - De allre størst hits sem Zonet útgáfan gaf út í Danmörku fyrir stuttu fór beint í 9. sætið á opinbera danska sölulistanum (Den officielle danske hitliste). Diskurinn kom einnig nýverið út í Kína og hefur selst mjög vel sem þykir góður árangur í þessu fjölmennasta ríki heims. Rússland, Finnland og fleiri lönd eru á döfinni og er ljóst að frægðarsól Robertinos rís nú hátt sem aldrei fyrr.
Um miðjan nóvember kemur út annar diskur með Robertino á Íslandi. Diskurinn hefur fengið nafnið: Robertino - Romantica og hefur að geyma upptökur frá gullárum þessa undrabarns.