40 ára starfsafmæli Hljóma
Hljómar frá Keflavík eiga 40 ára starfsafmæli um þessar mundir. Nýr diskur kemur út á sjálfan afmælisdaginn 5. október, en þá verða nákvæmlega 40 ár liðin frá því að Hljómarnir debuteruðu í Krossinum í Njarðvík, laugardaginn 5.október 1963. Við þann atburð má merkja upphaf Bítlaæðisins á Íslandi, fenómen sem skók heiminn um miðjan sjöunda áratuginn. Sonet gefur út þennan nýja disk Hljóma. Veglegir afmælistónleikar verða haldnir í Austrbæ að kvöldi afmælisdagsins 5. október. Hefjast herlegheitin stundvíslega kl.20. og verður tekið upp bæði fyrir sjónvarp (Saga film)  og útvarp (Rás 2)