Ítalska undrabarnið sem kom til Íslands 1961 og söng í nokkur skipti fyrir troðfullu húsi í Austurbæjarbíó, var ein vinsælasta og besta söngstjarna sem Íslendingar hafa nokkru sinni þekkt. Plötur hans voru spilaðar gjörsamlega í gegn næstu árin eftir heimsókn hans.
Perlur eins og O sole mio, Mama, Torna a Surriento, Santa Lucia og Ave Maria glitruðufegurri en nokkru sinni fyrr úr silfurbarka þess óviðjafnanlega undrabarns. Sonet hefur tekist að útvega leyfi til að gefa út öll bestu lög Robertino á geisladiski. Öll lögin verða stafrænt hljóðjöfnuð (Digitally Remastered). Hefur hvergi verið til sparað og metnaður lagður í, að gera disk þennan eins veglega úr garði, eins og unnt er. Þetta mun vera í fyrsta sinn, sem söngvar undrabarnsins Robertino verða fánlegir á Íslandi á geisladisk og er það mikið tilhlökkunarefni fyrir alla tónlistarunnendur.