Söngvaskáldið, leikarinn og útvarpsmaðurinn Hörður Torfa gefur út þann 4 sept. geisladisk sem kallast Elds saga og er fyrsti diskurinn í röð fimm geisladiska með söguþræði sem sem byggir meira og minna á lífsreynslu hans. Innihald hvers disks getur þó staðið sem sjálfstæð heild. Það fer allt eftir því hvernig hlustað er.
Á Elds sögu eru tólf sungnar sögur sem heita Neistar, Bruni, Sumarsól, Ís og eldur, Neistaflug, Langtíburtistan, Eldberinn, 10 mai, Ekki í mínu nafni, Úlfurinn, Vonir og væntingar og Sáðmenn söngvanna. Sögurnar fjalla um viðbrögð einstaklings við áreitni lífsins. Um ástina, hugsjónir og lífsviðhorf. Sögur einstaklings sem fann leið til að tjá sig og bergmála hugmyndir sínar og lífsviðhorf í gegnum söngva. Staðsettur á norðurhluta veraldar þar sem stutt er í ríki frostsins finnur hann kul heimsins en á sama tíma skynjar hann hlýju og baráttuanda lífsins og viljan til að nýta líf sitt öllum til góðs. Hann finnur fyrir knýjandi þörf til þess að syngja sig í gegnum vonir og væntingar tilverunnar, kljást við þá áreitni sem hver dagur ber í skauti sér. Deila reynslu sinni með öðrum. Honum finnst hann bera í sér eld sem mun lýsa honum og öðrum gegnum mesta myrkrið. En um leið skilur hann mikilvægi þess að fara varlega með þann eld sem honum hefur verið falið að vernda. Eldurinn sem lýsir og yljar er líka eldurinn sem brennir og eyðir. Og hver lítill neisti getur orðið að miklu báli sem engin leið er að hemja eða temja og því eins gott að fara varlega. Hann heyrir þungan nið fjarlægra stríða, annarskonar eldbera, og honum skilst að vonir og væntingar hans og annarra eru oftast á mörkum draums og veruleika. En í hjarta sér veit hann og finnur að það veigamesta í lífinu er kærleikur og ást.
Það má hlusta á plötuna með ýmsu móti t.d. að láta hana renna í gegn eins og hún er gerð. En svo er hægt að nota ýmindunaraflið og lesa Elds söguna aftast í bókinni og leika söngvana í þeirr röð sem þeir koma fyrir í sögunni og hlusta grant á textana. Setja ímyndunaraflið í gang.
Hörður Torfa er höfundur allrar tónlistar og texta og leikur á gítar og syngur og gefur einnig út diskinn. Hörður gerði sína fyrstu plötu árið 1970 og er Elds saga 20 platan hans með frumsömdu efni. Vilhjálmur Guðjónsson sér um allar útsetningar, upptökur og hljóðblöndun og leikur á fjölda hljóðfæra. Svo leikur Þórir Úlfarsson á timbales og harmoniku. Og tvær ungar stúlkur Urður Anna Björnsdóttir og Kristín Maria Kristinsdóttir syngja bakraddir í einum söng. Diskurinn var tekinn upp í maí síðastliðnum. Sonet dreifir.