Hin framsækna New York sveit Blonde redhead er á leiðinni í Austurbæ! Sveitin mun halda þar tónleika ásamt Skúla Sverrissyni bassaleikara sunnudaginn 19. september. Miðasala hefst 1. september á midi.is og í 12 tónum.
Zonet útgáfan stendur að komu Blonde redhead ásamt Skúla Sverrissyni sem hefur tengst sveitinni til margra ára. Blonde redhead er að ljúka velheppnuðum Evróputúr og kemur hingað eftir tónleika í London. Það er ljóst að koma sveitarinnar til landsins er hvalreki fyrir tónlistarunnendur.
Hugmyndin er að halda áfram með tónleika að þessari stærðargráðu í Austurbæ og standa samningaviðræður yfir við fleiri meistara. Í Austurbæ eru kjöraðstæður fyrir tónleika þar sem stemningin á að vera þétt og hljómburður góður.