Austurbær

Zonet hættir með Austurbæ

Frá og með 1. júní sl. hætti Zonet starfsemi sinni í Austurbæ. Húsið hefur verið selt og er nýr eigandi Fasteignafélagið Nýsir. Nýsir hefur í hyggju að halda áfram menningartengdri starfssemi af svipuðum toga og Zonet stóð fyrir í húsinu og óskum við hinum nýju eigendum góðs gengis og allra heilla í framtíðinni,


 

Fjölbreytt starfsemi

Það sem af er þessu ári hefur fjölbreytni einkennt starfsemina í Austurbæ. Gamanleikur, söngleikur, söngvakeppni, Freestyle og Músíktilraunir að ógleymdu sextugsafmæli Megasar...


 

Robertino í Austurbæ

Austurbær kynnir með stolti tónleika ítalska snillingsins Robertino í Austurbæ miðvikudaginn 1. desember n.k. Það verður blásið til sannkallaðrar ítalskrar veislu og hvergi til sparað.


 

Tónleikar með Alasnoaxis

Þriðjudaginn 2. nóvember n.k. spilar hljómsveitin AlasNoAxis í Austurbæ. Stórsveit Nixnoltes hitar upp. Tónlist Alasnoaxis er kannski best skilgreind sem jazz skotin spunamúsík með pönk- rokkáhrifum. Hljóðfæraleikur þeirra sem þarna koma fram getur varla flokkast undir neitt annað en tæra snilld. Miðasala er í 12 Tónum og á midi.is.


 

Miðasala á Lisu Ekdahl

Miðasala á tónleika Lisu Ekdahl hefst föstudaginn 1. október kl. 9 í Bókabúð Máls og menningar við Laugaveg og á midi.is. Miðaverð er 3900 kr. Tónleikarnir verða haldnir í Austurbæ 30. október kl. 20.30.


 

Góðir hljómleikar

Blonde Redhead spilaði fyrir fullu húsi í tvígang í Austurbæ sl. helgi. Það var samróma álit flestra sem mættu að hér hafi farið eitt almagnaðasta hljómleikaband sem sótt hefur landann heim. Upphitunarböndin, kombó Skúla Sverrissonar og Slowblow þóttu einnig hafa sýnt hreint frábæra takta.


 

Hausttónleikar Harðar Torfa

Hörður Torfason heldur árlega haustónleika sína í Austurbæ þann 10. september n.k. Miðasala er hafin á midi.is og í Austurbæ. Tónleikarnir hefjast þeir stundvíslega kl. 21.00.


 

Blonde redhead í Austurbæ!

Hin framsækna New York sveit Blonde redhead er á leiðinni í Austurbæ! Sveitin mun halda þar tónleika ásamt Skúla Sverrissyni bassaleikara sunnudaginn 19. september. Miðasala hefst 1. september á midi.is og í 12 tónum.


 

Grafík með tónleika

Hin ástsæla hljómsveit Grafík heldur tónleika Austurbæ þann 9. september n.k. Miðasala hefst þann 4. september. Allar nánari upplýsingar á concert.is.


 

Hárið fyrir fullu húsi

Söngleikurinn Hárið hefur gengið fyrir fullu húsi í Austurbæ frá frumsýningu í byrjun júlí. Sýningin er kraftmikil, fersk og umfram allt skemmtileg. Hægt er að nálgast miða hér.